Framleiðsla · Bókhald · GÁMES
Frá hráefni
til afstemmingar
Ein ferð í gegnum kerfið – hvert skref skráð einu sinni og flæðir sjálft áfram.
Hráefni móttekið
Sendingin kemur í hús. Móttakan er skráð á snertiskjá við dyrnar – á móti innkaupapöntuninni.
Skráð – lota, vottorð, gátlisti
Lotunúmer birgis skannað, vöruvottorðið fest við og gátlistinn kláraður. Frávik verða sjálfkrafa að GÁMES-frávikum.
Lager breytist
Um leið og móttakan er staðfest hækkar lagerinn – með kostnaðarverði á gengi Seðlabankans. Hreyfingar eru eingöngu viðbót.
Framleiðsla
Framleiðslulota stofnuð, klukkan sett í gang og starfsfólkið valið með einni snertingu. Hráefni dregst af lager – rétt lota.
Þrifaskráning
Þrif eftir framleiðslu skráð með tveimur snertingum. Þrifaáætlunin uppfærist og tíminn fer í kostnað lotunnar.
Lotan verður til
Fullunnin vara fær lotunúmer og kassamiða. Rekjanleikinn er rakinn sjálfkrafa – frá hráefnalotu að viðskiptavini.
L-2611-07
Fullkomin framleiðsluskýrsla
Allt á einum stað – lotur, þrif, mannstundir, afföll, vottanir og undirskrift. Tvær útgáfur: innanhúss og fyrir viðskiptavin, án trúnaðarupplýsinga.
Innri lager → ytri lager
Heil bretti flutt í vöruhús. Kerfið reiknar bretti úr brettaröðun, prentar brettamiða og tilkynnir flutninginn – eftir staðfestingu.
Sölupöntun
Pöntun kemur inn – í síma, tölvupósti eða úr vefversluninni. Verð og afsláttur viðskiptavinar fyllast sjálf.
Afhent
Fylgiseðill án verða fylgir sendingunni. Viðtakandi kvittar og pöntunin verður „Afhent“ – með tíma og nafni.
Reikningur
„Breyta í reikning“ – og útgáfa með staðfestingu. Bókun, VSK, áfengis- og skilagjald, lager og krafa gerast í einni færslu.
Krafa í banka
Krafan stofnast í netbanka greiðanda um leið og reikningurinn er gefinn út – eða ein mánaðarkrafa fyrir alla reikninga mánaðarins.
Greitt
Greiðslan berst úr bankanum. Kerfið sækir hreyfingar sjálft – enginn innsláttur, ekkert Excel.
Afstemming
Bankafærslan og reikningurinn smella saman. Greiðslan er bókuð og reikningurinn lokaður – sjálfvirkt, eftir reglum sem þú stjórnar.