Framleiðsla
Uppskriftir með útgáfum, framleiðslulotur, eiming og blöndun, átöppun og pökkun, kassa- og brettamiðar og lotuskýrslur með fullum rekjanleika.
Framleiðsla · Bókhald · GÁMES
Einvirki er eitt kerfi fyrir íslenska framleiðendur – frá hráefni og framleiðslulotu að reikningi, bankakröfu og fullbúnu bókhaldi. Ein skráning sem flæðir í gegnum allan reksturinn.
Kerfið
Engin skjöl milli forrita, enginn tvíinnsláttur og engar afstemmingar á milli kerfa sem tala ekki saman.
Þegar lota er tappað á flöskur hreyfist lagerinn, kostnaðarverðið uppfærist og varan er tilbúin á reikning. Reikningurinn verður að kröfu í banka, greiðslan parast sjálf og bókhaldið stemmir – og GÁMES-skráningarnar fylgja hverju skrefi.
Einvirki er smíðað í daglegum rekstri íslensks framleiðanda og hefur vaxið með raunverulegum verkefnum, ekki glærum.
Einingar
Hver eining stendur sterk ein og sér – en krafturinn liggur í því að þær deila sömu gögnum.
Uppskriftir með útgáfum, framleiðslulotur, eiming og blöndun, átöppun og pökkun, kassa- og brettamiðar og lotuskýrslur með fullum rekjanleika.
Fjárhagur, fylgiskjöl, VSK, prófjöfnuður, skuldastaða og áramót. Bókað skjal er aldrei endurskrifað – leiðrétt er með bakfærslu.
Fráviksskrá, hættugreining og CCP, flæðirit, þrifaáætlun, meindýravarnir, þjálfun starfsfólks og árleg sannprófun – tilbúið fyrir eftirlitið.
Lagerstaða á stöðum, talningar, innkaupapantanir og móttaka. Kaupreikningar úr pósti eru lesnir sjálfkrafa og bíða yfirferðar.
Reikningar og kreditreikningar, tilboð og proforma, sölupantanir, verðflokkar, erlend mynt og rafrænir reikningar um Peppol.
Stimpilklukka, verkskráning, yfirvinna, launakeyrslur og launaseðlar. Kerfið undirbýr – eigandinn samþykkir og greiðir sjálfur.
Kröfur stofnaðar við útgáfu reiknings, bankafærslur sóttar og paraðar við opna reikninga. Engin greiðsla fer án samþykkis eiganda.
Vörulisti beint úr kerfinu, öruggar greiðslur, sendingar með Póstinum innanlands og utan, og útflutningsskýrslur sjálfkrafa.
Afgreiðsla, kvittanir, dagsuppgjör og sjálfsafgreiðsla – hver sala bókuð beint á rétta deild og útibú.
Af hverju Einvirki
Bókhald á að vera rétt – ekki bara oftast. Þess vegna eru reglurnar byggðar inn í kjarnann.
Allt viðmót á íslensku og íslenskar reglur innbyggðar: VSK, áfengisgjald, skilagjald, tollur, RSK-skýrslur og gengi Seðlabanka Íslands.
Tveggja þátta auðkenning er skylda. Innskráning með passkey – Face ID, Touch ID eða fingrafari – og hlutverk sem ráða hver sér hvað.
Hvert fyrirtæki fær eigin gagnagrunn, hýstan á Íslandi, með dulkóðuðum afritum á hverri nóttu.
Debet jafnt kredit, samfelld númer án gata, aðeins bókað í opið tímabil og útgefnum reikningum aldrei breytt – varið í sjálfum gagnagrunninum, ekki bara í forritinu.
Leiðin inn
Við förum yfir reksturinn, deildir og útibú og hvaða einingar skipta máli.
Viðskiptavinir, birgjar, vörur, opnunarstaða og saga flutt yfir – yfirfarið áður en nokkuð er bókað.
Þjálfun, samhliða keyrsla og stuðningur þar til allt gengur eins og klukka.
Viltu sjá hvernig Einvirki myndi líta út í þínum rekstri? Sendu okkur línu og við bókum kynningu.
hallo@einvirki.is